RÁ – Jafnvægi og flæði
RÁ býður upp á heildræna nálgun fyrir fólk sem vill finna meiri ró, styrk og jafnvægi í líkama og huga. Í gegnum H.A.F. jóga í vatni, slökun, flot, markþjálfun og göngumarkþjálfun skapar RÁ öruggt og nærandi rými þar sem hver og einn getur tekið þátt á sínum forsendum.
Slökun
Hreyfing
Hugarró
Treyst af yfir 400 aðilum
4.9/5

Um Rakel

Reynsla, þekking og heildræn nálgun
Stofnandi og eigandi er Rakel Hrund Ágústsdóttir þroskaþjálfi, jógakennari og markþjálfi. Rakel hefur víðtæka menntun á sínu sviði og býr yfir áralangri reynslu af því að kenna og starfa með fólki á öllum aldri með ólíkar þarfir. Ferilskrá hennar spannar m.a. eftirfarandi:
Þroskaþjálfi
Rakel hefur meðal annars starfað við þjálfun/kennslu á sérnámsbraut, þjálfun ungbarna, stuðning við börn með flóknar fatlanir og vinnu með fólki með ólíkar stuðningsþarfir.
- Fjölbrautaskólinn við Ármúla, kennsla á sérnámsbraut, 19 ár
- Þjálfun ungbarna á Lyngási, 10 ár.
- Stuðningsforeldri með fjölfötluð börn, meðfram starfi.
- Landspítalinn Rjóður, endurhæfing fyrir börn með háskólanámi.
- Íbúðarkjarni fyrir fatlaða.
- Stýri gönguhóp fyrir fólk með flóknar áskoranir.
- Stýri fjallgönguhóp fyrir fólk með áskoranir.
Jógakennari
Rakel hefur lokið grunnnámi í jógafræðum og sérhæft sig í H.A.F. jóga, Yoga Nidra, sitjandi jóga og aðlöguðu jóga fyrir fólk með skerta hreyfigetu, eldri borgara og fólk með flóknar áskoranir.
- Gunnnám í jógafræðum
- H.A.F yoga - Holistic aqua flow yoga / Heildrænt jógaflæði í vatni
- Yoga Nidra
- Sitjandi jóga / jóga fyrir fólk með skerta hreyfigetu og eldri borgara
- Námskeið í H.A.F jóga fyrir VIRK endurhæfing
- Námskeið í H.A.F jóga fyrir verðandi mæður
- Námskeið í H.A.F jóga fyrir fólk með skerta hreyfigetu og flóknar fatlanir
- Námskeið í H.A.F jóga fyrir fólk með flóknar áskoranir CRPS , gigt og fleira
- Námskeið í H.A.F jóga fyrir eldri borgara
- Násmkeið í H.A.F jóga fyrir fólk í ofþyngd
- Námskeið í H.A.F jóga, opnir tímar
Markþjálfi
Rakel er ICF-vottaður markþjálfi frá Profectus og hefur kennt markþjálfun fyrir fólk með geðraskanir og aðrar áskoranir.
- ICF vottun frá Profectus
- Fjölmennt, kennsla í markþjálfun
- Göngumarkþjálfun
HAF Jóga
Göngumarkþjálfun
Markþjálfun
Ferlið okkar
Þitt ferðalag til betri líðanar

01
Finna það sem hentar þér
Við byrjum á að finna rétta námskeiðið eða leiðina fyrir þig út frá þínum þörfum og aðstæðum. Hvort sem það er H.A.F. jóga, markþjálfun eða göngumarkþjálfun, þá er markmiðið að þú finnir rými þar sem þér líður vel.
02
Mæta og upplifa
Í tímunum er unnið með mjúka hreyfingu, öndun, slökun og nærandi samtal í öruggu og rólegu umhverfi. Þú tekur þátt á þínum forsendum – með áherslu á að minnka álag, losa streitu og styrkja tengingu við eigin líkama og huga.
03
Taka með þér áfram
Markmiðið er ekki bara stundin sjálf, heldur það sem þú tekur með þér út í daglegt líf. Aukin ró, meiri skýrleiki, betri líðan og sterkari trú á eigin getu.
Námskeið
Námskeið sem styðja við ró, styrk og vellíðan
RÁ sameinar mjúka hreyfingu, öndun, núvitund, slökun og samtal. Markmiðið er að styðja fólk í átt að aukinni vellíðan, betri lífsgæðum og sterkari tengingu við eigin líkama.
RÁ sérhæfir sig í aðlagaðri nálgun fyrir fólk með ólíkar þarfir, meðal annars fólk í endurhæfingu, fólk með skerta hreyfigetu, andlegar áskoranir eða flóknar fatlanir.
Fljótandi ró fyrir þig og barnið
Heildrænt jógaflæði í vatni (Holistic Aqua Flow Yoga) er einstakt námskeið þar sem mjúkar hreyfingar, jógaæfingar, hugleiðsla og slökun í vatni skapa nærandi stund fyrir líkama og huga verðandi móður.
Í tímunum vinnum við með aðlagaðar jógaæfingar í vatni sem létta á, styrkja og slaka á
líkamanum; bæta hreyfigetu liða, örva djúpvöðvavirkni og hjálpa til við að losa streitu.
Áhersla er lögð á:
- Mjúkar flæðisæfingar og teygjur
- Öndun og núvitund
- Hugleiðslu og djúpa slökun í floti
Hentar sérstaklega vel fyrir verðandi mæður sem vilja njóta þess að slaka, minnka álag á líkamann og tengjast sjálfum sér í rólegu og nærandi umhverfi.
Mánudagar kl. 17:50–18:40
Opnir tímar í heildrænt jógaflæði í vatni
Námskeið í HAF-jóga (Holistic Aqua Flow Yoga) eru mjúkir og slakandi tímar í jógaflæði í vatni, öndun og fljótandi slökun. Gerðar eru mjúkar teygjur og léttar æfingar sem aðlagaðar eru að vatni. Í lok hvers tíma er dásamlegt flot og slökun.
Hreyfing í vatni slakar á vöðvum, viðheldur hreyfigetu liða, þjálfar djúpvöðva og losar um streitu.
Flotmeðferð er djúpslakandi slökun sem miðar að því að næra og örva heilbrigt orkuflæði líkamans og losa út neikvæð áhrif streitu.
Opnir tímar: mánudagar kl. 16:45–17:35, skráning: rakel74hrund@gmail.com
Heildrænt jógaflæði í vatni – slökun og flot í samstafi við VIRK endurhæfing
Námskeið í HAF-jóga (Holistic aqua flow yoga) eru mjúkir og slakandi tímar í jógaflæði í vatni, öndun og fljótandi slökun. Gerðar eru mjúkar teygjur og léttar æfingar sem aðlagaðar eru að vatni. Í lok hvers tíma er dásamlegt flot og slökun.
Hreyfing í vatni slakar á vöðvum, viðheldur hreyfigetu liða, þjálfar djúpvöðva og losar um streitu.
Flotmeðferð er djúpslakandi slökun sem miðar að því að næra og örva heilbrigt orkuflæði líkamans og losa út neikvæð áhrif streitu.
VIRK-námskeið: miðvikudagar kl. 11:30–12:20, skráning hjá ráðgjafa VIRK
HAF-jóga fyrir fólk með skerta hreyfigetu
Námskeið í HAF-jóga (Holistic aqua flow yoga) eru mjúkir og slakandi tímar í jógaflæði í vatni, öndun og fljótandi slökun. Gerðar eru mjúkar teygjur sem aðlagaðar eru hverjum og einum, allir geta tekið þátt á sínum forsendum. Í lok hvers tíma er góð slökun og flot.
Þessir tímar eru ætlaðir fólki með skerta hreyfigetu og flóknar fatlanir.
Hreyfing í vatni slakar á vöðvum, viðheldur hreyfigetu liða, þjálfar djúpvöðva og losar um streitu.
Flotmeðferð er djúpslakandi slökun sem miðar að því að næra og örva heilbrigt orkuflæði líkamans og losa út neikvæð áhrif streitu.
Þriðjudagar:
Fjölmennt: kl. 17:00–17:45, skráning hjá Fjölmennt fjolmennt@fjolmennt.is
H.A.F. jóga | Fjölmennt - Símenntunar og þekkingarmiðstöð
Opnir tímar: kl. 18:15–19:00, skráning: rakel74hrund@gmail.com
Fimmtudagar:
ÁS – Vinna og virkni: kl.14:20 - 15:00, skráning : rakel74hrund@gmail.com
Göngumarkþjálfun
Göngumarkþjálfun er markþjálfun sem fer fram á göngu í náttúrunni. Hún sameinar hreyfingu, ró og samtal sem hjálpar fólki að finna skýrleika, jafnvægi og vellíðan.
Þessi aðferð hentar sérstaklega vel fyrir fólk sem á erfitt með hefðbundin samskipti, þar sem auðveldara er að tala án augnsambands og í afslöppuðu umhverfi. Náttúran róar hugann, minnkar streitu og gerir samtalið eðlilegra og léttara.
Föstudagar kl. 12:00–13:00, skráning: rakel74hrund@gmail.com
Val um Rauðavatn,Vifilsstaðavatn eða Nauthólsvík
Markþjálfun: Styrkleikar mínir, fyrir fólk með flóknar áskoranir
Markmið námskeiðsins er að hjálpa einstaklingum að finna sinn styrk og trúa meira á sjálfan sig.
Læra að setja sér markmið og efla það besta sem býr innra með viðkomandi og draga það fram.
Hentar einstaklega vel fyrir fólk með flóknar áskoranir.
Sráning: fjolmennt@fjolmennt.is
Markþjálfun - styrkleikar mínir | Fjölmennt - Símenntunar og þekkingarmiðstöð
Hafa samband
Viltu vita hvað hentar þér best?
Viltu skrá þig á námskeið, spyrja út í tíma eða fá ráðgjöf um hvað hentar þér best? Sendu Rakel línu og hún svarar eins fljótt og hægt er.

Frásagnir
Frásagnir frá
viðskiptavinum

Rakel heldur rýminu ótrúlega vel og tímarnir voru blanda af mjúku flæði, styrk og slökun sem hjálpuðu mér bæði líkamlega og andlega.
Ég labbaði alltaf út úr flot-tímanum með minni spennu og meiri ró. Þetta námskeið varð fastur punktur í vikunni minni og ég myndi mæla með Rakel við hvaða verðandi móður sem er.
Hún er frábær kennari og skapaði rými þar sem ég fann mig örugga, studda og velkomna. Ég er endalaust þakklát fyrir tímana.
- Maríanna
Að vera í yoga sundleikfimi hjá Rakel er dásamlegt, svo góð slökun fyrir líkama og sál, að hreyfa þá vöðva sem maður vissi ekki eða spáði aldrei í og flotið í lokin er algjört æði. Eftir hvern tíma fer ég snemma upp í rúm og finn svo góða slökun og sofna eins og ungabarn. Heilsan fyrst svo allt hitt – mæli svo mikið með H.A F. Yoga/flot hjá Rakel.
- Katrín
Jóga og flot er róandi og endurnærandi – mjúkar teygjur sem núllstilla og flot sem róar hugann. Mæli eindregið með að bæta þessu inn í rútínuna.
- Erna
Það er svo gaman að vera í H.A.F. Yoga. Við erum látin gera svo skemmtilegar æfingar. Ég hlakka til að fara aftur á námskeið með þér Rakel.
- Gerður
Tók þátt í H.A.F. Yoga-námskeiði á vegum Fjölmenntar sem fylgdarmaður og upplifunin var bæði fagleg og jákvæð. Rakel tók einstaklega vel á móti okkur, sýndi skýran skilning á þörfum þess einstaklings sem ég fylgdi, skapaði rólegt og öruggt umhverfi allan tímann. Rakel var þolinmóður kennari og útskýrði æfingarnar á góðan og aðlagaðan hátt og tryggði að allir gætu notið tímans á sínum forsendum.
Áhersla var lögð á vellíðan og að þátttakendur fengju að upplifa bæði ró og stuðning. Ég mæli heilshugar með H.A.F Yoga fyrir alla sem vilja nærandi og vel skipulagt námskeið.
- ÍLÆ
Rakel heldur rýminu ótrúlega vel og tímarnir voru blanda af mjúku flæði, styrk og slökun sem hjálpuðu mér bæði líkamlega og andlega.
Ég labbaði alltaf út úr flot-tímanum með minni spennu og meiri ró. Þetta námskeið varð fastur punktur í vikunni minni og ég myndi mæla með Rakel við hvaða verðandi móður sem er.
Hún er frábær kennari og skapaði rými þar sem ég fann mig örugga, studda og velkomna. Ég er endalaust þakklát fyrir tímana.
- Maríanna
Spurningar og Svör
Algengar spurningar
Hverjum henta námskeiðin?
Námskeið RÁ henta fólki á öllum aldri með ólíkar þarfir. Sérstök áhersla er á fólk með skerta hreyfigetu, andlegar áskoranir, fólk í endurhæfingu eða sem vill einfaldlega auka vellíðan og ró í daglegu lífi.
Þarf ég að hafa reynslu af jóga?
Nei, alls ekki. Allir tímar eru aðlagaðir að hverjum og einum og þú tekur þátt á þínum forsendum, óháð reynslu eða líkamlegu ástandi.
Hvað er H.A.F. jóga?
Námskeið í H.A.F. Yoga (Holistic Aqua Flow Yoga) eru mjúkir og slakandi tímar í jógaflæði í vatni, öndun og fljótandi slökun. Gerðar eru mjúkar teygjur og léttar æfingar sem aðlagaðar eru að vatni. Í lok hvers tíma er dásamlegt flot og slökun.
Hreyfing í vatni slakar á vöðvum, viðheldur hreyfigetu liða, þjálfar djúpvöðva og losar um streitu.
Flotmeðferð er djúpslakandi slökun sem miðast að því að næra og örva heilbrigt orkuflæði líkamans og losa út neikvæð áhrif streitu.
RÁ sérhæfir sig í jóganámskeiðum fyrir fólk á öllum aldri sem stendur höllum fæti á einhvern hátt.
Hvað er flot og slökun í vatni?
Flot er djúpslakandi upplifun þar sem líkaminn fær að hvíla sig í vatninu. Það getur hjálpað til við að losa um streitu, róa taugakerfið og skapa djúpa slökun.
Hvernig virkar markþjálfunin?
Markþjálfun er aðferðafræði sem hjálpar einstaklingum að ná auknum árangri, persónulegum vexti og betri lífsgæðum. Markþjálfun er samtal sem hjálpar fólki að finna sín eigin svör, setja sér markmið og nýta styrkleika sína.
Markþjálfun er fyrir hvern þann sem hefur metnað til þess að fá meira út úr lífinu og blómstra – þann sem vill með stuðningi markþjálfa virkja sína innri visku og styrk til þess að breyta draumsýn í veruleika á hvaða sviði lífsins sem er; t.d. varðandi heilsueflingu, samskipti, nám, störf, jafnvægi einkalífs og atvinnu, aukna lífsgleði og aukin lífsgæði.
Hvað er göngumarkþjálfun?
Göngumarkþjálfun er markþjálfun sem fer fram á göngu í náttúrunni. Hún sameinar hreyfingu, ró og samtal sem hjálpar fólki að finna skýrleika, jafnvægi og vellíðan.
Þessi aðferð hentar sérstaklega vel fyrir fólk sem á erfitt með hefðbundin samskipti, þar sem auðveldara er að tala án augnsambands og í afslöppuðu umhverfi.
Náttúran róar hugann, minnkar streitu og gerir samtalið eðlilegra og léttara.
Get ég fengið ráðgjöf áður en ég skrái mig?
Já, þú ert alltaf velkomin/n að hafa samband til að fá ráðgjöf um hvaða námskeið hentar þér best.
Hvar fara tímarnir fram?
Tímarnir fara fram í vatni (fyrir H.A.F. jóga) eða úti í náttúrunni (fyrir göngumarkþjálfun), t.d. við Rauðavatn eða Nauthólsvík.

